Skipulags- og umhverfisnefnd (2009-2014)
1.Fundartími skipulags- og umhverfisnefndar.
1010201
2.Ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefndar sveitarfélaga árið 2010.
1009122
Formaður gerði grein fyrir fundinum sem haldinn var í Borgarnesi 29. okt. s.l.
Guðmundur Valsson og Magnús Freyr Ólafsson sóttu fundinn ásamt framkvæmdastjóra.
3.Frístundagarðar - skipulag.
1008117
Snjólfur Eiríksson, garðyrkjustjóri kom á fund nefndarinnar og skýrði frá sínum hugleiðingum varðandi frístundagarða. Hann ásamt framkvæmdastjóra gerðu grein fyrir hugsanlegum svæðum sem til greina koma til þessara nota.
Miðað er við að hver garður sé á bilinu 700 ? 800 m2 og að aðgengi sé að köldu vatni og rafmagni.
Framkvæmdastjóra falið að gera kostnaðarmat á þeim hugmyndum sem fram komu á fundinum.
4.Gámar - Stöðuleyfi.
1010200
Skipulags- og umhverfisnefnd felur byggingarfulltrúa að taka saman skýrslu um fjölda og staðsetningu þeirra og leggja fyrir nefndina á næsta fundi.
Fundi slitið.
Hugsanlegar breytingar á fundartíma ræddar.