Skóla- og frístundaráð
Dagskrá
1.Ársskýrsla sérfræðiþjónustu skóla- og frístundasviðs 2017-2018
1806088
Yfirlit yfir sérfræðiþjónustu Akraneskaupstaðar.
2.Brekkubæjarskóli og Grundaskóli þróunarverkefni/þróunarsjóður skóla- og frístundasviðs
1809189
Kynning á niðurstöðum verkefnins "Að fanga fjölbreytileikann" sem fékk styrk úr þróunarsjóði skóla- og frístundasviðs árið 2016.
Ásta Egilsdóttir kennari í Grundaskóla og Guðrún Guðbjarnardóttir kennari í Brekkubæjarskóla kynntu niðurstöður verkefnisins.
Sigurður Arnar Sigurðsson áheyrnarfulltrúi skólastjórnenda grunnskólanna, Brynhildur Björg Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólastjórnenda, Hjördís Dögg Grímarsdóttir fulltrúi kennara í Grundaskóla og Kolbrún Sigurðardóttir fulltrúi kennara í Brekkubæjarskóla sitja fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð þakkar afar góða skýrslu um þróunarverkefnið og hvetur til þess að haldið verði áfram að þróa hugmyndafræði og vinnubrögð í anda verkefnisins. Jafnframt leggur ráðið áherslu á mikilvægi þess að fulltrúar verkefnisins miðli afrakstri verkefnisins til skólasamfélagsins á Akranesi og víðar.

3.Framtíðarþörf á leikskólaplássum á Akranesi
1808057
Ályktun starfshóp um framtíðarþörf á leikskólaplássi á Akranesi.
Brynhildur Björg Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra situr fundinn undir þessum lið.
Skóla- og frístundaráð vísar til sviðsstjóra frekari úrvinnslu á ályktun starfshópsins, í samráði við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Tillaga liggi fyrir á síðari fundi ráðsins í október.
Skóla- og frístundaráð vísar til sviðsstjóra frekari úrvinnslu á ályktun starfshópsins, í samráði við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Tillaga liggi fyrir á síðari fundi ráðsins í október.
4.Málsmeðferðarreglur vegna styrkumsókna
1809174
Endurskoðun á málsmeðferðarreglum vegna styrkumsókna á sviði menningar- og íþróttamála.
Skóla- og frístundaráð leggur til að breyting á reglum verði samþykktar. Lagt er til að unnið verði að endurskoðun fyrir úthlutun árið 2020.
5.Námsvist utan lögheimilssveitarfélags
1809204
Trúnaðarmál til kynningar.
Trúnaðarmál til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:20.
Skóla- og frístundráð þakkar góða samantekt á ársskýrslu sérfræðiþjónustunnar. Lagt er til að sérfræðiteymið leggi fram útfærðar hugmyndir sínar um fræðslu Akraneskaupstaðar og kostnaðarmeti þær sem rúmast ekki innan fjárhagsáætlunar.