Stjórn Akranesstofu (2008-2013)
43. fundur stjórnar Akranesstofu, haldinn í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18, miðvikudaginn 25. maí 2011 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Gunnhildur Björnsdóttir, formaður
Hjördís Garðarsdóttir, varaformaður
Þorgeir Jósefsson, aðalmaður
Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri
Guðríður Sigurjónsdóttir, varamaður
Elsa Lára Arnardóttir, varamaður
Fundargerð ritaði: Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri Akranesstofu.
Fyrir tekið:
1. 1104150 - Viðburðir á Akranesi 2011
Verkefnastjóri kynnti drög að dagskrá Sjómannadagshelgarinnar og einnig undirbúning og drög að dagskrá 17. júní og Norðurálsmótsins. Þá voru kynntar ýmsar nýjungar sem boðið verður upp á í tengslum við Írska daga ásamt stöðu mála varðandi undirbúning og skipulag hátíðarinnar.
Verkefnastjóra og formanni falið að ganga frá erindi til bæjarráðs vegna fyrirsjáanlegs viðbótarkostnaðar við hátíðarhöld á 17. júní sem tengjast Norðurálsmótinu.
2. 1105066 - Verndun og endurnýjun trébáta
Ályktun frá málþingi um verndun og endurnýjun trébáta sem haldið var í Sjóminjasafninu Víkinni í Reykjavík 6. maí sl.
Lagt fram.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:35.