Stjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita (2000-2008)
Ár 2004, fimmtudaginn 23. september kl. 18:00 kom stjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita saman til fundar í Safnaskálanum að Görðum.
Jósef H. Þorgeirsson,
Valdimar Þorvaldsson,
Jón Gunnlaugsson,
Sverrir Jónsson,
Jóna Adolfsdóttir,
Ása Helgadóttir.
Þetta gerðist á fundinum:
1. Starfsemi safnsins 2004.
2. Jón Allansson lagði fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2005 og skýrði hana út.
Áætluninni er vísað til næsta fundar og framkvæmdastjórn falið að athuga málið milli funda.
3. Endurskoðun safnastefnu.
Jón lagði fram drög að safnastefnu.
Samþykkt að fela formanni og forstöðumanni að leggja fram tillögu að safnastefnu á næsta fundi.
4. Lagt fram endurskoðað rekstrar- og framkvæmdayfirlit til dagsins í dag.
5. Jón lagði fram gögn um útbrotakirkju.
Málinu frestað til næsta fundar.
6. Rætt um hugsanlegt framlag safnsins á vökudögum.
Forstöðumanni falið að kanna málið.
7. Lagt fram bréf Jóns Allanssonar, dags. 15.09.2004.
Formanni falið að athuga málið milli funda.
Jósef H. Þorgeirsson (sign)
Sveinn Kristinsson (sign)
Sverrir Jónsson (sign)
Valdimar Þorvaldsson (sign)
Ása Helgadóttir (sign)
Jóna Adolfsdóttir (sign)
Jón Allansson (sign)