Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
Fundinn sátu: Elsa Lára Arnardóttir formaður, Kristjana Helga Ólafsdóttir varaformaður, Helgi Pétur Ottesen, Björn Guðmundsson og Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Fyrir var tekið:
1. Vistunarmál
Samþykkt vistun fyrir þrjá einstaklinga, sjá trúnaðarbók.
2. Viðburðaryfirlit
Lagt fram viðburðaryfirlit fyrir maí-júní 2019.
3. Fjárhagsáætlun 2019 - viðauki
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun Höfða 2019 ásamt greinargerð framkvæmdastjóra. Breytingar leiða til kr. 11.547.817 hækkunar áætluðum tekjum og til kr. 26.868.955 hækkunar á rekstrargjöldum. Breytingar leiða til neikvæðrar rekstrarniðurstöðu upp á kr. 11.922.455 og til kr. 1.136.000 lækkunar á handbæru fé sem verður þá áætlað samtals kr. 118.990.000 í árslok 2019. Stjórn Höfða samþykkir viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2019.
4. Niðurstöður eldvarnarskoðunar 21.5.2019
Lagðar fram.
5. Starfsmannamál
Trúnaðarmál.
6. Tölvupóstur SFV dags. 19.6.2019 ásamt minnisblöðum
Lögð fram minnisblöð um lögmæti aðgerða er tengjast rammasamningi hjúkrunarheimila sem stjórn SFV fól Andra Árnasyni hæstaréttarlögmanni hjá Juris lögmannsstofu að taka saman.
7. Ársreikningur Gjafasjóðs Höfða 2018
Lagður fram.
8. Reglur um dagdvöl aldraðra
Stjórn Höfða samþykkir framlagðar reglur um dagdvöl aldraðra.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30