Stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar (2000-2006)
Fundur nr. 371 hjá stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar var haldinn í fundarsal bæjarskrifstofu mánudaginn 28. nóvember 2005 og hófst hann kl. 08:30.
Mættir voru: Guðmundur Páll Jónsson, formaður stjórnar
Hörður Kári Jóhannesson
Jórunn Guðmundsdóttir
Auk þeirra Andrés Ólafsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins.
Fyrir tekið:
1. Skýrslur Landsbréfa.
1.1. Ársfjórðungsskýrsla 01.10.05.
1.2. Mánaðarskýrsla 01.11.05.
Lagðar fram.
Valgeir Geirsson sjóðsstjóri fjallaði um og skýrði árangur í fjárstýringu Landsbankans á eignasafni Lífeyrissjóðsins.
2. Fjárfestingarstefna Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar fyrir árið 2006.
Valgeir Geirsson sjóðsstjóri kynnti tillögu Landsbankans ? eignastýringu að fjárfestingarstefnu Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar fyrir árið 2006.
Stjórnin samþykkir tillögu að fjárfestingarstefnu Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar fyrir árið 2006.
3. Lífeyrir:
Sjá trúnaðarbók.
4. Breyting úr örorkulífeyri í lífeyri:
Sjá trúnaðarbók.
5. Nýtt örorkumat:
Sjá trúnaðarbók.
6. Bréf Landssamtaka lífeyrissjóða dags. 01.11.2005. Samkomulag um gagnkvæma viðurkenningu á iðgjaldagreiðslum við ákvörðun réttar til jafnrar ávinnslu lífeyrisréttinda.
Lagt fram.
7. Bréf Fjármálaeftirlitsins dags. 08.11.2005. Útfærsla á stefnu um upplýsingagjöf um athuganir á verðbréfamarkaði.
Lagt fram.
8. Bréf Fjármálaeftirlitsins dags. 10.11.2005. Mat á hæfi framkvæmdastjóra og stjórnarmanna.
Lagt fram.
9. Fulltrúaráðsfundur Landssamtaka lífeyrissjóða 06.12.2005.
Lagt fram.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 10 :40