Stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar (2000-2006)
Fundur nr. 375. Ár 2006, fimmtudaginn 18. maí, var ársfundur Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar fyrir árið 2005, haldinn í bæjarþingsalnum Stillholti 16-18, Akranesi og hófst hann kl. 12:00.
Mættir voru:
Hörður Kári Jóhannesson
Jórunn Guðmundsdóttir
Auk þeirra
Einnig mættu: 2 sjóðsfélagar.
Fyrir tekið:
1. Skýrsla stjórnar.
Formaður flutti skýrslu stjórnar.
2. Ársreikningur 2005.
Framkvæmdastjóri skýrði ársreikning Lífeyrissjóðs fyrir árið 2005 sem samþykktur hefur verið í bæjarstjórn.
Til máls tóku:Magnús Oddsson, AÓ, GPJ, Valdimar Þorvaldsson
3. Tryggingarfræðileg úttekt.
Framkvæmdastjóri fór yfir niðurstöður tryggingafræðilegrar úttektar sem lögð var fram á fundinum.
Framkvæmdastjóri fór yfir samþykkta fjárfestingarstefnu Lífeyrissjóðsins fyrir árið 2006.
5. Önnur mál.
Guðmundur Páll Jónsson fjallaði um þá umræðu sem væri uppi að Akraneskaupstaðar greiddi sjóðnum inn á áfallna lífeyrisskuldbindingu.
Hörður þakkaði samstarfsmönnum í stjórn sjóðsins fyrir samstarfið á liðnum árum, þar sem hann er að láta af stjórnarstörfum.
Guðmundur þakkaði Herði fyrir vel unnin störf.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 13:05