Bæjarstjórnarfundur 8. janúar
05.01.2019
Fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 8. janúar kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt er að hlusta á fundinn á FM 95,0 og horfa á beina útsendingu á www.facebook.com/akraneskaupstadur.
Dagskrá fundarins er aðgengileg hér
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
- Sjálfstæðisflokkurinn að Kirkjubraut 8, laugardaginn 5. janúar kl. 10:30
- Bæjarmálafundir Samfylkingarinnar og Framsókn og frjálsra falla niður.