Dagur góðra verka
19.05.2015
Föstudaginn 22. maí n.k. hafa sambandsaðilar Hlutverks (samtök um vinnu og verkþjálfun) ákveðið að vera með dag sem kallaður er „Fögnum góðum verkum“ Sambandsaðilar, þ.m.t. Fjöliðjan á Akranesi, munu hafa staðina sína opna fyrir gesti og gangandi þar sem fólki gefst kostur á að kynna sér þau verkefni sem unnin eru í Fjöliðjunni frá kl. 13-15.
Heitt kaffi á könnunni og allir velkomnir.