Góugleði Hestamannafélagsins Dreyra
11.03.2017
Hestamannafélagið Dreyri stefnir á að fara í hópreið frá Æðarodda í dag þann 11. mars og ríða niður að Stillholti í tilefni Góugleðar og 70 ára afmæli félagsins en félagið var stofnað þann 1. maí árið 1947. Lagt verður af stað frá Æðarodda kl. 13 og riðið sjávarmegin meðfram tjaldsvæðinu, inn á Ægisbraut, síðan Vesturgötu, Stillholt og Þjóðbraut í átt að hesthúsahverfinu að nýju.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitsemi og taka vel á móti Dreyrafélögum.