Innanbæjarstrætó hættur að ganga
06.05.2015
Innanbæjarstrætó á Akranesi gengur hvorki í dag, 6. maí né á morgun, 7. maí vegna verkfalls bílstjóra. Flestir bílstjóranna eru í Verkalýðsfélagi Akraness sem er aðili að starfsgreinasambandinu. Ef ekki semst fyrir 19. maí næstkomandi þá munu ferðir strætisvagnanna innanbæjar einnig falla niður 19. og 20. maí og síðan frá 26. maí en þá hefur verið boðað til ótímabundins allsherjarverkfalls. Ferðir Strætó Bs á Akranes hafa einnig verið felldar niður í morgun. Verkfallið hefur einnig áhrif á leikskóla á Akranesi og á heimaþjónustu en hluti starfsmanna í heimaþjónustunni vinnur hjá fyrirtækinu Húsfélagaþjónustan ehf. og eru félagar í Verkalýðsfélagi Akraness.