Jaðarsbakkalaug 30 ára í dag
16.07.2018
Þann 16.júlí 1988 var Jaðarsbakkalaug formlega vígð og fagnar því 30 ára afmæli í dag. Pottasvæðið var endurnýjað og opnað 26.ágúst 2017.
Nokkrir punktar úr byggingarsögu íþróttamiðstöðvarinnar við Jaðarsbakka
- 1984 var samþykkt í bæjarstjórn að hefja byggingu íþróttamiðstöðvar við Jaðarsbakka. Fyrst um sinn var unnið að byggingu á sundlauginni og búningaaðstöðu og síðar íþróttasalnum sem tengdist byggingunni.
- Aðaluppdrættir voru samþykktir 21.júní 1984.
- Teikningar íþróttahúss við Jaðarsbakka voru samþykktar á árunum 1985 – 1988
- Fyrsta skóflustungan var tekin af íþróttamiðstöðinni 28.ágúst 1985
- Jaðarsbakkalaug var tekin í notkun 16.júlí árið 1988
- Íþróttahúsið við Jaðarsbakka var vígt 28.ágúst 1988.
- 1991 var hafist handa við byggingu íþróttamiðstöðvar á þremur hæðum.
- Íþróttamiðstöðin var byggð og tekin í notkun smátt og smátt á árunum 1991-1995
- 1.desember 1995 var íþróttamiðstöðin á Akranesi formlega tekin í notkun.
- 3.júní 2005 var fyrsta skóflustungan tekin af Akraneshöllinni
- Akraneshöllin var vígð 21.október 2006 á 60 ára afmæli Íþróttabandalagsins.