Miðbæjarsamtökin Akratorg á fundi með skipulags- og umhverfisráði
13.12.2022
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 12. desember var meðal annars fjallað um málefni miðbæjarins. Fulltrúar frá Miðbæjarsamtökunum Akratorg mættu til fundarins, kynntu samtökin og ræddu hugmyndir um hvernig bæta megi ásýnd gamla miðbæjarins og glæða hann lífi. Skapaðist góð umræða mili fundarmanna eins og fram kemur í fundargerð.