Sumarstörf við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum
Starf verkstjóra við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 20 ára og eldri
Akraneskaupstaður auglýsir eftir verkstjóra yfir starfshóp við almennt viðhald, umhirðu og framkvæmdir opinna svæða í umsjón Akraneskaupstaðar. Um er að ræða tímabundið starf í u.þ.b. sex mánuði frá apríl/maí til september/október. Umsækjendur þurfa að vera 20 ára og eldri og með bílpróf.
Helstu verkefni:
- Umhirða og viðhald útivistarsvæða, leiksvæða og annarra opinna svæða
- Umhirða gróðurs
- Gróðursetning trjágróðurs og sumarblóma
- Önnur tilfallandi verkefni
Kröfur um hæfni verkstjóra:
- Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum
- Verklagni og útsjónarsemi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Færni í samskiptum, lipurð og jákvæðni
- Þekking á gróðri æskileg
Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um rafrænt í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl. Nánari upplýsingar gefur Sindri Birgisson umhverfisstjóri í tölvupósti á netfangið sindri.birgisson@akranes.is eða í síma 433-1000.
Störf við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 18. ára og eldri
Akraneskaupstaður auglýsir eftir starfsfólki við almennt viðhald, umhirðu og framkvæmdir opinna svæða í umsjón Akraneskaupstaðar. Starfstími er 3 - 6 mánuðir yfir tímabilið maí til október. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára og eldri.