19. júní á Akranesi
18.06.2015
Í tilefni kvenréttindadagsins sem markar í ár eitt hundrað ára kosningarétt kvenna á Íslandi verður kvenleg dagskrá á Akranesi þann 19. júní. Kvenlegir súputónleikar verða í Tónlistarskóla Akraness kl. 12.05 og Þjóðlagasveitin mun leika í Bókasafni Akraness kl. 17.00. Sýningarnar ,,Saga líknandi handa" er opin í Guðnýjarstofu að Byggðasafninu í Görðum kl. 10 til 17.00 og sýningin ,,Learning to fly" er opin í Akranesvita kl. 10.00 til 16.00. Allir hjartanlega velkomnir, frítt inn á viðburði.