Af bæ í borg - Akranes heiðursgestur á Menningarnótt
„Það er mikill heiður fyrir Akraneskaupstað að vera valin heiðursgestur menningarnætur í ár" sagði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á blaðamannafundi um Menningarnótt 2017 sem haldinn var fyrr í dag um borð í ferjunni Akranes. Fulltrúar Akraneskaupstaðar og Reykjavíkurborgar komu þar saman og kynntu fyrirhugaða dagskrá Menningarnætur sem er nú haldin í 22. skiptið.
Sem fyrr segir er Akranes heiðursgestur og ætlar af því tilefni bjóða uppá myndarlega dagskrá á veitingastaðnum Messanum við Sjóminjasafnið. Kynntir verða til leiks bæjarlistamenn Akraness frá upphafi og ætla þeir að taka á móti gestum og gangandi yfir daginn. Þeir bæjarlistamenn sem verða á staðnum eru:
- Kolbrún S. Kjarval leirlistakona (2017).
- Slitnir strengir, þjóðlagasveit (2016).
- Gyða L. Jónsdóttir Wells myndhöggvari (2015).
- Erna Hafnes myndlistakona (2014).
- Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur (2013).
- Sveinn Arnar Sæmundsson orgelleikari (2012).
- Dýrfinna Torfadóttir gullsmiður (2010).
- Kristján Kristjánsson rithöfundur og bókaútgefandi (2002). Kristján mun einnig vera með verk eftir Braga Þórðarson rithöfund og bókaútgefanda (2004).
- Smári Vífilsson tenórsöngvari (2001).
- Kristín Steinsdóttir rithöfundur (1998).
- Bjarni Þór Bjarnason myndlistarmaður (1997).
- Philippe Ricart handverksmaður (1996).
- Helena Guttormsdóttir myndlistarmaður (1993). Helena mun einnig sína verk eftir föður sinn Guttorm Jónsson högglistamann (1994).
- Sigríður Rut Hreinsdóttir mun sína verk eftir föður sinn Hrein Elíasson myndlistarmann (1992).
Opnunarathöfn hefst kl. 13:30 og er opið til kl. 20:00. Hægt er að setjast niður í spjall, skoða og kaupa listmuni og sjá hvernig sum listaverkanna eru gerð. Nokkrir bæjarlistamenn munu stíga á stokk þennan dag og verður m.a. upplestur rithöfunda og tónlistarflutningur. Einnig verða á staðnum matvælaframleiðendur frá Akranesi, meðal annars Vignir og Norðanfiskur sem ætla að bjóða upp á karfa og Kaja Organic ætlar að bjóða upp á sínar gómsætu hrákökur. Dagskrá dagsins verður með eftirfarandi hætti:
13:30 Opnunarathöfn
Ávarp Dags B. Eggertssonar borgarstjóri og Sævars Freys Þráinssonar bæjarstjóra ásamt því flytur bæjarlistamaður 2012, Sveinn Arnar Sæmundsson og félagar í Kalman kórnum nokkur lög.
14:30 Upplestur rithöfunda
Bæjarlistamaður 2002, Kristján Kristjánsson les úr eigin verkum og verkum Braga Þórðarsonar, bæjarlistamanns 2004.
16:00 Tónlist
Bæjarlistamaður 2001, Smári Vífilsson flytur nokkur lög.
17:00 Upplestur rithöfunda
Bæjarlistamenn 1998 og 2013, Kristín Steinsdóttir og Sigurbjörg Þrastardóttir lesa úr eigin verkum.
18:00 Tónlist
Bæjarlistamaður 2016, Slitnir strengir flytja nokkur lög.
Ferjan Akranes mun sigla aukaferðir þennan dag og er því tilvalið fyrir Skagamenn að gera sér ferð til Reykjavíkur á Menningarnótt. Miðasala fer fram á saeferdir.is og er gott að tryggja sér miða með góðum fyrirvara. Ferðaáætlun og verðskrá fyrir laugardaginn er eftirfarandi:
Ferðaáætlun
- Frá Reykjavík: 08:45, 10:45, 15:45, 17:45, 20:45 og 23:45
- Frá Akranesi: 09:30, 11:30, 16:30, 18:30, 21:30 og 00:30
Verðskrá:
- Fullorðinn kr. 2500 fram og til baka
- Aldraðir, öryrkjar og börn 6-16 ára kr. 1500 fram og til baka
- Frítt fyrir 0-5 ára
- Fjölskyldutilboð: kr. 8000 (2 fullorðnir og allt að þrjú börn 6-16 ára)
Minnum einnig á 20 miða kortin:
- 20 miða kort (hver ferð 875 kr.) 17.500
- 20 miða kort aldraðir, öryrkjar og börn 6-16 ára (hver ferð 500 kr.) 10.000
Hátíðin í ár verður ein allsherjar tónlistar- og menningarveisla en í miðborginni verður boðið uppá þrenna stórtónleika og yfir hundrað tónlistarviðburðir verða haldnir um alla borg. Frítt er inná öll söfn í miðborginni sem bjóða uppá afar fjölbreytta dagskrá. Leikarar, dansarar og fjöllistafólk verða með uppákomur og íbúar bjóða víða uppá dagskrá í húsagörðum og sundum. Hlemmur er áherslusvæði Menningarnætur í ár en þar hefur verið mikil uppbygging síðustu misseri og boðið verður uppá fjölda áhugaverðra viðburða á svæðinu. Að venju er frítt í Strætó og Flugeldasýningin verður á sínum stað á Austurbakka kl. 23. Á Menningarnótt er sérstök áhersla lögð á að fjölskyldan njóti samveru, komi saman í bæinn og fari heim saman. Hægt er að nálgast alla viðburði á Menningarnótt á vefnum menningarnott.is.