Afmælishátíð ÍA
25.11.2016
Laugardaginn 26. nóvember frá kl. 13-16 verður opið hús í Íþróttahúsinu við Vesturgötu og munu aðildarfélög ÍA taka á móti gestum og kynna starfsemi sína. Eitthvað í boði fyrir alla fjölskylduna, m.a. verður hægt að:
- Mæla skothraða
- Prófa skotfimi
- Spila badminton
- Reyna sig í golfhermi
- Spila boccia
- Skjóta á körfu
- Horfa á dans
- Hoppa á loftdýnu
- Máta karatebúnað
- Spila keilu
- Slá í boxpúða
- Prófa klifurvegginn
- Lyfta lóðum
Einnig mun Hörður Kári Jóhannesson vera með skoðunarferðir um húsið kl. 13:30, 14:30 og 15:30. Klukkan 14:00 mun ÍA kórinn syngja, Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri flytur ávarp og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir formaður ÍA setur afmælishátíðina. Léttar veitingar verða í boði að því loknu.
Allir með gulir og glaðir og ekki gleyma að stilla á 95.0 - Útvarp Akranes.