Fara í efni  

Akranes tekur þátt í Útsvari

Lið Akranes í Útsvari 2018. 
Frá vinstri: Gerður Jóhanna, Hjalti Brynjar og Vilborg Þórunn.
Lið Akranes í Útsvari 2018. Frá vinstri: Gerður Jóhanna, Hjalti Brynjar og Vilborg Þórunn.

Akranes verður með lið í spurningakeppni á milli sveitarfélaga í sjónvarpsþættinum Útsvari á RÚV. Bein útsending frá spurningakeppni sveitarfélaga sem fer nú fram tólfta árið í röð og í þetta sinn verður keppnin snarpari en áður og lýkur með úrslitum í janúar. Þátttakendur í vetur eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komist hafa í úrslit síðustu ár, eða oftast komist nálægt því.

Annað kvöld, þann 5. október munu fulltrúar Akraness keppa við Fjarðabyggð. Fulltrúar að þessu sinni eru þær þaulreyndu Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir kennari í Brekkubæjarskóla og Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir héraðsskjalavörður og bæjarfulltrúi ásamt Hjalta Brynjari Árnasyni lögmanni sem kemur nýr í liðið.

Munið að stilla yfir á Rúv kl. 19:45 og hvetja okkar fólk áfram. Vekjum athygli á því að gestir í sal eru velkomnir. Mæting er hálftíma áður en þátturinn hefst að Efstaleiti 1.

ÁFRAM AKRANES!


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00