Fara í efni  

akranes.is besti sveitarfélagavefur landsins

Vefur Akraneskaupstaðar var valinn besti sveitarfélagavefurinn á Degi upplýsingatækninnar í dag en boðað var til ráðstefnu um upplýsingatækni og lýðræði á vegum Skýrslutæknifélags Íslands. Veittar voru viðurkenningar fyrir besta opinbera vefinn og fékk Þjóðskrá Íslands þá viðurkenningu fyrir vefinn island.is og viðurkenningin besti sveitarfélagavefurinn kom í hlut Akraneskaupstaðar fyrir akranes.is. Fimm sveitarfélög voru tilnefnd en þau voru Seltjarnarnesbær, Fjarðabyggð, Skagafjörður og Kópavogsbær en vefir þessara sveitarfélaga fengu hæstu stigin í úttekt sem kallast Hvað er spunnið í opinber vefi og er unnin af fyrirtækinu Sjá sem sérhæfir sig í aðgengi vefja. Það var Þórdís Reykfjörð Gylfadóttir sem veitti viðurkenningarnar fyrir hönd innanríkisráðherra. Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri tók á móti viðurkenningunni og í ávarpi sínu  þakkaði  bæjarstjóri  starfsfólki bæjarskrifstofunnar undir forystu Sædísar Sigurmundsdóttur verkefnisstjóra fyrir vinnu við endurbætur á vef Akraneskaupstaðar. Einnig lýsti bæjarstjóri yfir ánægju með samstarfið við Stefnu en fyrirtækið hannaði vefinn í samstarfi við Akraneskaupstað. Dómnefndina skipuðu Marta Lárusdóttir lektor í upplýsingatækni hjá Háskólanum í Reykjavík, Rakel Pálsdóttir forstöðumaður almannatengsla hjá Samtökum iðnaðarins og Tinni Sveinsson þróunarstjóri 365 og vefstjóri visir.is Viðurkenningin er veitt annað hvert ár og hlaut Reykjavíkurborg viðurkenninguna árið 2013.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00