Auglýst eftir áhugasömum aðila til að byggja upp gróðrarstöð við Þjóðveg á Akranesi
20.01.2016
Akraneskaupstaður auglýsir eftir áhugasömum aðila til að byggja upp gróðrarstöð á lóð við Þjóðveg 15 og 15B sem er landsvæði við hitaveitutanka Akraneskaupstaðar.
Við val á rekstraraðila verður litið til eftirfarandi þátta:
- Menntun í garðplöntuframleiðslu og ræktun gróðurs
- Lýsing á því hvernig svæðið verður byggt upp
- Að fjármögnun sé tryggð
- Tíma- og verkáætlun
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2016 og skal skila inn umsóknum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18 eða með tölvupósti á akranes@akranes.is. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í síma 433-1000.