Framkvæmdir við fráveitu við Krókalón að hefjast
Veitur eru að hefja vinnu við lagningu fráveitulagna og byggingu dælubrunns við Krókalón í þeim tilgangi að veita frárennslinu áleiðis í nýja hreinsistöð sem gangsett verður fyrir árslok.
Framkvæmdasvæðið er frá Krókatúni 20 að Vesturgötu 105, meðfram grjótgarðinum í fjörunni. Byggður verður staðsteyptur, niðurgrafinn dælubrunnur neðan við Vesturgötu 69 og ný yfirfallsútrás verður lögð frá honum um 100 m út í sjó. Gamla útrásin verður fjarlægð eftir að hreinsistöðin verður komin í gang.
Framkvæmdir eru að hefjast og áætlað er að þær standi fram á haust. Óhjákvæmilega fylgir henni rask og biðja forsvarsmenn Veitna íbúa að sýna því skilning. Myndin með fréttinni sýnir legu nýrra fráveitulagna við Krókalón og þar verður þungi framkvæmdanna mestur.