Innritun í leikskóla haustið 2021
04.03.2021
Innritun barna í leikskóla á Akranesi fyrir komandi skólaár er nú lokið. Foreldrar rúmlega 100 barna hafa fengið tölvupóst um innritun og eru þau beðin um að staðfesta leikskólaplássið innan 7 daga. Leikskólastjóri gefur nánari upplýsingar um leikskólann, hvenær vistun getur átt sér stað og hvernig aðlögunartíma verður háttað.