Laus störf hjá íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar hjá íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar:
100% starf karlmanns í Íþróttahúsinu við Vesturgötu
Starfsmann (karl) vantar í 100% starf í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Um er að ræða framtíðarstarf sem felst m.a. gæslu í búningsherbergjum karla og þrifum og afgreiðslu í íþróttamannvirkjum. Unnið er á tvískiptum vöktum og þarf viðkomandi að geta hafið störf 1. júní nk. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eða Verkalýðsfélags Akraness.
Hæfnisviðmið:
- Umsækjandi þarf að standast hæfnipróf sundstaða
- Reynsla af þjónustustörfum
- Færni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og jákvæðni
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl. Nánari upplýsingar gefur Hörður Kári Jóhannesson forstöðumaður íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar í tölvupósti og í síma 433-1100.
Athuga: Til að öðlast rétt á atvinnuviðtali þarf umsækjandi að standast hæfnispróf sundstaða sem sett verður upp áður en atvinnuviðtöl hefjast.
80% starf kvennmanns í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum
Starfsmann (konu) vantar í 80% starf í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum. Um er að ræða framtíðarstarf sem felst m.a. gæslu í búningsherbergjum kvenna og þrifum og afgreiðslu í íþróttamannvirkjum. Unnið er á tvískiptum vöktum og þarf viðkomandi að geta hafið störf 1. júní nk. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eða Verkalýðsfélags Akraness.
Hæfnisviðmið:
- Umsækjandi þarf að standast hæfnipróf sundstaða
- Reynsla af þjónustustörfum
- Færni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi og jákvæðni
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl. Nánari upplýsingar gefur Hörður Kári Jóhannesson forstöðumaður íþróttamannvirkja Akraneskaupstaðar í tölvupósti og í síma 433-1100.
Athuga: Til að öðlast rétt á atvinnuviðtali þarf umsækjandi að standast hæfnispróf sundstaða sem sett verður upp áður en atvinnuviðtöl hefjast.
Sumarafleysingar í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum
Starfsfólk vantar, bæði konu og karl, í sumarafleysingar við Íþróttamiðstöðina á Jaðarsbökkum. Um er að ræða tímavinnu og unnið er á tvískiptum vöktum. Störfin felast m.a. í afgreiðslu, gæslu og þrifum í kvenna- og karlaklefum Íþróttamiðstöðvar. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eða Verkalýðsfélags Akraness.