Laus störf í Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 430 talsins, en starfsmenn tæplega áttatíu. Skólastefna í Brekkubæjarskóla ber heitið „Góður og fróður“ og byggir á sýn skólans. Skólastefnan er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans.
Brekkubæjarskóli auglýsir eftirfarandi stöður lausar til umsóknar fyrir skólaárið 2016-2017
- Starf umsjónarkennara á yngsta stigi, 80% afleysingastaða.
- Starf umsjónarkennara á miðstigi, 80% afleysingastaða.
- Starf myndmenntakennara, 80% staða til fastráðningar.
Menntun og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
- Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni
- Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og stundvísi
- Reynsla af kennslu í Byrjendalæsi og Orð af orði er kostur (á við um auglýsta stöður umsjónarkennara á mið og yngstastigi)
Hér er sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl n.k. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags grunnskólakennara (FG) og Samninganefndar sveitarfélaga (SNS).
Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri í tölvupósti á netfangið arnbjorg.stefansdottir@akranes.is eða í síma 433-1300.