Laust starf aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóra í leikskólanum Teigaseli
10.11.2015
Aðstoðarleikskóla- og sérkennslustjóri óskast til starfa í leikskólann Teigasel. Um er að ræða tímabundið 100% starf frá 1. desember 2015 - 30. júní 2016. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og kennarasambands Íslands.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu kennslu- og uppeldisstarfs.
- Vera staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
- Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð leikskólans.
- Bera ábyrgð á utanumhaldi sérkennslu, samskipti við sérfræðiþjónustu, prófanir, þjálfun og vinna með snemmtæk íhlutun í málörvun.
- Sjá um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
- Vera faglegur leiðtogi.
- Sinna öðrum verkefnum sem leikskólastjóri felur honum.
Menntun og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf sem leikskólakennari.
- Leikskólasérkennaramenntun og reynsla af stjórnun er æskileg.
- Reynsla af því að vinna með sérkennslu í leikskólum og snemmtæka íhlutun í málörvun
- Frumkvæði og vilji til að leita nýrra leiða.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Áhugi og/eða reynsla af að leiða þróunarstarf.
- Góð tölvu- og íslenskukunnátta
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti eða í síma 433-1280.