Vinirnir Stefán, Jón og Freyr á opnum degi Fjöliðjunnar 2014.
Í tilefni af alþjóðlegum degi fatlaðra þann 3. desember næstkomandi verður opið hús í Fjöliðjunni frá kl: 13:30-15:00. Þóra Grímsdóttir sagnaþula mun líta við ásamt því verða starfsmenn með leik- og tónlistaratriði. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og piparkökur.