Óskilamunir í íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar
12.05.2015
Hægt er að vitja óskilamuna í öllum íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar dagana 14. - 22. maí n.k. Við hvetjum alla þá sem sakna íþróttafatnaðar, útifatnaðar, sundfatnaðar eða annarra muna til að koma og athuga hvort þeir geti verið hjá okkur.
Eftir 26. maí 2015 verða óskilamunir gefnir í fatasöfnun Rauða krossins.