Fara í efni  

Öskudagurinn á Akranesi

Bjarnabófarnir.
Bjarnabófarnir.

Kátt var á götum Akraness í gær þegar Öskudagurinn rann loksins upp. Margar ,,fígúrur" fóru á milli fyrirtækja til að gleðja starfsfólk með söng. Hingað á bæjarskrifstofuna komu skemmtilega uppáklædd börn, meðal annars ofurhetjur, vampírur, sjúklingar, prinsessur, nunnur, trúðar og margir fleiri sem sungu  sígild lög eins og Gamla Nóa og Bjarnastaðabeljurnar en einnig sungu margir þetta skemmtilega Öskudagslag Akurnesinga:

Öskudagslag

Akurnesingar erum við
og það er voða gaman.
Göngum inn í búðirnar
og syngjum allir saman.
Þeir sem horfa á okkur
þeir verða grænir í framan
því Akurnesingar erum við
og  það er voða gaman.

Myndir frá Öskudeginum á Akranesi má skoða hér. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00