Starf verkefnastjóra á skipulags- og umhverfissviði
18.06.2015
Akraneskaupstaður auglýsir eftir verkefnastjóra til starfa á skipulags-og umhverfissviði. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í vaxandi sveitarfélagi. Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Tækni- og útboðsvinna sem tengist götum, fasteignum og opnum svæðum.
- Verkefnastjórn, eftirlit og samskipti við verktaka og samstarfsaðila.
- Eftirlit með málaflokkum er lúta að sorpi, félagslegum íbúðum og almenningssamgöngum.
- Tæknivinna sem þörf er á hverju sinni á skipulags- og umhverfissviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Byggingartæknifræði, byggingarverkfræði eða sambærileg menntun.
- Þekking og reynsla af cad teikniforritum ásamt færni í notkun Microsoft Office hugbúnaðar.
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og góðir skipulagshæfileikar.
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar eða í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 12. júlí n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Páll Harðarson sviðsstjóri í tölvupósti eða í síma 433-1000.