Fara í efni  

Starf málmblásturskennara við Tónlistarskólann á Akranesi

Málmblásturskennari óskast til starfa í allt að 50% starf við Tónlistarskólann á Akranesi frá 1. ágúst 2016. Laun eru samkvæmt kjarasamningum FT eða FÍH.  Helstu verkefni eru kennsla á málmblásturshljóðfæri.

Hlutverk Tónlistarskólans á Akranesi er að stuðla að öflugu tónlistarlífi, jafnframt því að vinna að aukinni hæfni, þekkingu og þroska einstaklinga. Áhersla skal lögð á að skólinn þjóni öllum þeim sem eftir tónlistarnámi sækjast án tillits til aldurs, ennfremur ber skólanum að taka tillit til margbreytilegra áhugasviða nemenda, getu þeirra og þroska. Tónlistarskólinn á Akranesi býr við góðan aðbúnað til kennslu að Dalbraut 1 og býður upp á fjölbreytileika í skólastarfinu.

Menntun og hæfniskröfur

  • Tónlistarkennaramenntun
  • Reynsla af tónlistarkennslu æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní n.k.  Nánari upplýsingar um starfið veitir Lárus Sighvatsson skólastjóri í tölvupósti eða í síma 433-1900.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00