Fara í efni  

Sumaropnun í Akranesvita

Þann 1. júní hófst sumaropnum í Akranesvita og verður hann opinn alla daga frá kl. 10.00 -16.00 til 31. ágúst. Hilmar Sigvaldason „vitavörður“ stendur flestar vaktir á meðan á opnunartíma stendur. Á fyrsta degi var mikið líf og fjör. Um morguninn komu tvær rútur annars vegar frá Kópavogi og hins vegar frá Hvanneyri. KrakkaRÚV kom einnig í heimsókn og voru þar á ferð ungir Skagamenn að kynna Akranes og áhugaverða staði hér í bæ.

Full dagskrá er í vitanum í sumar. Nemendur Tónlistarskólans á Akranesi verða með tónleika alla virka daga kl. 13.30, einnig opnar Jónína Guðnadóttir listasýningu þar á Írskum dögum.  

Gaman er segja frá því að Hilmar afhenti nýlega Héraðsskjalasafni Akraness tuttugu gestabækur sem gestir Akranesvita hafa ritað nöfn sín í frá árinu 2012. Ætla má að tæplega 25 þúsund manns hafi komið í Akranesvita á þessum tíma. 

Nánari upplýsingar um Akranesvita má finna hér á facebooksíðu vitans.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00