Myndasafn Akraneskaupstaðar
Hugmyndarvinna starfshóps um uppbyggingu Jaðarsbakkasvæðis um hugsanlega framtíðarsýn svæðisins.
Skoða myndirÁ Vökudögum í ár var sérstök áhersla lögð á barnamenningu. Bókasafnið á Akranesi hlaut sérstakan styrk frá Samtökum Sveitarfélaga á Vesturlandi til barnamenningarhátíðar fyrir svæðið sunnan Skarðsheiðar sem er hluti af áhersluverkefni undir Sóknaráætlun Vesturlands. Verkefnið var unnið með miðstigum grunnskólanna þriggja á svæðinu og þá sérstaklega með 6. bekkjum skólanna. Þema verkefnisins er Bókmenntir og listir tengt svæðinu og hafa börnin unnið að margskonar sköpun í skólanum það sem af er þessu skólaári. Á Vökudögum var sköpun barnanna sett fram í þremur mismunandi sýningum og voru fjórar listasmiðjur haldnar í tengslum við sýningarnar. Þá hélt Improv Ísland spunaleikhópurinn sérstakar sýningar í Bíóhöllinni á Akranesi fyrir miðstig skólanna. Í verkefninu var unnið með barnamenningu út frá þremur megin stoðum: - Menning sköpuð af börnum - Menning með börnum - Menning fyrir börn
Skoða myndirAkranes var heiðursgetur á Menningarnótt þann 19. ágúst 2017. Af gefnu tilefni komu bæjarlistamenn og matvælaframleiðendur saman og kynntu afurðir sínar við dásamlegt veður og fjölmenni á Sjóminjasafninu. Ljósmyndir tók Jónas Ottósson.
Skoða myndirMyndir frá bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem haldinn var þann 31. janúar 2017.
Skoða myndir