Fara í efni  

Fjórtán sóttu um starf sviðsstjóra skóla-og frístundasviðs

Fjórtán manns sóttu um starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar en staðan var auglýst laus til umsóknar í sumar. Hlut­verk sviðsins er að veita börnum og ungmennum bestu mögu­legu tæki­færi til leiks, mennt­unar og frístunda­starfs í samvinnu við fjöl­skyldur og nærsam­fé­lagið og að vera fram­sækið forystuafl í skóla- og frístunda­starfi. Á verk­sviði skóla- og frístunda­sviðs heyrir rekstur grunn­skóla, tónlist­ar­skóla, leik­skóla, íþrótta­mann­virkja og frístunda­mið­stöðvar. Sviðs­stjóri ber ábyrgð á áætl­ana­gerð og undir­bún­ingi stefnu­mót­unar í mála­flokknum og öðrum verk­efnum sem heyra undir sviðið. Sviðs­stjóri er ráðinn af bæjar­stjórn og heyrir undir bæjar­stjóra í skipu­riti.

Það er fyrirtækið Capacent sem annast úrvinnslu umsókna en bæjarstjórn ræður í starfið að fenginni umsögn skóla- og frístundaráðs. Umsækjendur eru eftirtaldir, í stafrófsröð:

Arna B. Árnadóttir aðstoðarskólastjóri
Arnar Ævarsson kennari
Elín María Björnsdóttir alþjóðlegur ráðgjafi
Eydís Aðalbjörnsdóttir kennari
Gísli Jón Kristjánsson sérfræðingur
Jón Rúnar Hilmarsson skólastjóri
Kristinn J. Reimarsson deildarstjóri
Kristrún Kristinsdóttir launafulltrúi
Ólafur Kjartansson ráðgjafi
Ragnheiður Ásta Birgisdóttir lögfræðingur
Sandra Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri
Sólveig Katrín Hallgrímsdóttir deildarstjóri
Svava Jensen fyrirtækjaeigandi
Valgerður Janusdóttir mannauðsstjóri


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00