Laust starf leikskólakennara í Teigaseli
03.02.2016
Leikskólakennari óskast til starfa í Leikskólann Teigasel. Um er að ræða 87,5% stöðu sem er laus til umsóknar. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Menntun og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleiki og jákvæðni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Stundvísi og góð íslenskukunnátta
Hér er hægt að sækja um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar næstkomandi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Þóra Jónsdóttir leikskólastjóri í tölvupósti á netfangið teigasel@akranes.is eða í síma 433-1280.