Fara í efni  

Framkvæmdir að hefjast við Jaðarsbakkalaug

Sundlaugarsvæðið skv. teikningum Basalt
Sundlaugarsvæðið skv. teikningum Basalt

Í dag þann 6. október voru samningar undirritaðir við Pípó Pípulagningarþjónustu og GS Import vegna framkvæmda við endurnýjun á heitum pottum í Jaðarsbakkalaug og uppbyggingu á heitri laug við Langasand. Framkvæmdir hefjast 17. október næstkomandi. 

Á meðan vinna verktaka stendur yfir verður athafnasvæðið við Jaðarsbakka girt af á bakka laugarinnar. Ætlunin er að prófa hvort hægt sé, á meðan verkið stendur yfir, að hita rennibrautarlaugina upp í ca 38 °C og nota sem hana sem heitan pott og koma þannig til móts við sundlaugargesti á meðan framkvæmdir standa yfir. Áætluð verklok vegna Jaðarsbakkalaugar eru 1. apríl 2017.

Akraneskaupstaður biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem kunna að verða af framkvæmdunum en leitast er við að sem minnst röskun verði á almennri starfssemi sundlaugarinnar sem verður  í fullri notkun nánast allan verktímann. Auglýst verður sérstaklega þegar loka þarf öllu svæðinu vegna endanlegs frágangs í kringum pottana.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00