Opnað fyrir umsóknir í Íþróttasjóð og Tækniþróunarsjóð
31.08.2016
Íþróttasjóður - umsóknarfrestur 1. október 2016
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt lögum nr. 64/1998 og reglugerð nr. 803/2008. Öll íþrótta- og ungmennafélög í landinu geta sótt um, ásamt þeim sem stunda rannsóknir á sviði íþrótta og lýðheilsu.
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna hér.
Tækniþróunarsjóður - umsóknarfrestur til 15. september
Tækniþróunarsjóður styrkir nýsköpunarverkefni sem geta aukið samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Veittir eru styrkir í eftirfarandi flokkum:
- Fyrirtækjastyrkur - Vöxtur og Sprettur
- Fyrirtækjastyrkur - Sproti
- Fyrirtækjastyrkur - Markaðsstyrkur