Fara í efni  

Vallarsel 40 ára

Vallarsel fagnar 40 ára afmæli sínu en hann opnaði þann 20. maí 1979.  Vallarsel er elsti starfandi leikskólinn á Akranesi og var sá fyrsti sem var byggður sem slíkur. Fyrstu árin eftir að hann tók til starfa voru eingöngu tvær deildir í skólanum en árið 1985 var þriðja deildin opnuð, dagheimilisdeild. Byggt hefur verið tvisvar við hann og var hann lengi vel þriggja deilda en haustið 2004 var tekin í notkun nýbygging og er leikskólinn sex deilda með um 140 börn og 40 starfsmenn. Leikskólastjóri er Björg Jónsdóttir og aðstoðarleikskólastjóri er Vilborg Valgeirsdóttir.  

Í tilefni af afmælinu hafa verið hátíðarhöld alla vikuna og hafa börn og starfsfólk fagnað tímamótunum á ýmsan hátt. Á sjálfan afmælisdaginn var m.a. farið fylktu liði í skrúðgöngu og síðan var opið hús fyrir foreldra og velunnara. Í dag, föstudag, var grillað í blíðunni og húllum hæ í garðinum fyrir börn, starfsfólk og foreldra. Við óskum Vallarseli til hamingju með daginn, hipp hipp húrra!


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00