Félagsmálaráð (2002-2008)
669. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 1. júní 2004 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
Tryggvi Bjarnason
Sigurður Arnar Sigurðsson
Varamenn: Guðný Sigurðardóttir
Sigurveig Stefánsdóttir
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs og Sveinborg Kristjánsdóttir yfirfélagsráðgjafi sem ritaði fundargerð.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Liðveisla.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
4. Viðbótarlán.
Samþykkt var eitt viðbótarlán að upphæð kr. 1.500.000,-
5. Launakönnun Akraneskaupstaðar.
Félagsmálaráð beinir því til bæjarráðs að sviðstjórum verði falið að skoða þann mun sem er á launum karla og kvenna, körlum í vil, bæði hvað varðar grunnlaun þar sem munurinn er 5,2% og heildarlaun þar sem munurinn er 10,1%. Félagsmálaráð mælist til þess að áfram verði unnið að því að greina óútskýrðan launamun hjá Akraneskaupstað. Krafan er sambærileg laun fyrir sambærilega vinnu annað er óásættanlegt.
Fundi slitið kl. 17:30