Fara í efni  

Tónheilun með Berglindi

Tónheilun er hljóðmeðferð sem byggir á hljóðbylgjum sem skapar jafnvægi í líkama, huga og sál. Getur dregið úr streitu, ýtt undir vellíðan og bætt svefn. Markmiðið með meðferðinni er að ná djúpslökun.
 
Hvernig virkar tónheilun?
Hljóðbylgjur hafa einstaklega róandi áhrif á taugakerfið og hugann, jafnvel hjá fólki sem er undir miklu álagi og á erfitt með að ná slökun. Bylgjurnar koma fólki í djúpt slökunarástand og það verður auðveldara að ná fókus í hugleiðslu. Oftast upplifir fólk mikinn frið og ró. Sumir lýsa tímunum þannig að það sé eins og þau fari á einhvern annan stað.
 
Við hverju má búast?
Tími í tónheilun gengur þannig fyrir sig að þú liggur á dýnu með teppi, púða og augnhvílu (þú færð allt á staðnum). Best er að vera í þægilegum fötum, sem þrengja ekki að, og sokkum, til að vera nógu hlýtt. Spilað er á skálarnar meirihlutann af tímanum og þú leyfir þér að svífa inn í notalegt tónheilunarferðalag. Í lokin ert þú svo leidd/ur rólega til baka.
 
Takmarkaður fjöldi kemst í hvern tíma, nauðsynlegt að skrá sig.
Mikilvægt er að vera mættur tímalega, helst 10 mín fyrir tímann til þess að koma sér fyrir. Tíminn er 75 mínútur.
VERÐ:
Iðkendur YogAndi kr.4500
Aðrir kr.5000
Skráning í skilaboðum Fb eða senda póst á: hjayogandi@gmail.com
_______________________
Tónheilari:
Berglind er tónheilari, vefstjóri, þýðandi og útgefandi. Hún kynntist fyrst tónheilun með kristals-söngskálum árið 2018, þegar hún var að læra um hljóðbylgjur og jákvæð áhrif þeirra á líkamann. Berglind heillaðist strax af þessum mögnuðu hljóðfærum og áhrifunum sem þau höfðu á hana. Berglind hefur veitt þjónustu sína í tónheilun hjá Yogavitund í Garðabæ og Yogalíf í Kópavogi, og núna einnig YogAndi á Akranesi! 🙂
   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00