Æskulýðs- og félagsmálaráð (2000-2002)
602. fundur æskulýðs- og félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 8. maí 2001 og hófst hann kl. 8:00.
Mættir voru: Inga Sigurðardóttir,
Tryggvi Bjarnason,
Oddný Valgeirsdóttir,
Sæmundur Víglundsson
Pétur Svanbergsson
Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir. Sveinborg Kristjánsdóttir, félagsráðgjafi, ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Oddný Valgeirsdóttir.
Fundur settur af formanni félagsmálaráðs.
Fyrir tekið:
1. Íþróttamál, æskulýðs- og félagsmál.
Æskulýðs- og félagsmálaráð óskar eftir sameiginlegum fundi með íþróttanefnd miðvikudaginn 16. maí
2. kl. 18:00.
3. Umsögn um frumvarp til barnaverndarlaga.
Umsögnin kynnt og lögð fram.
4. Málefni fatlaðra.
Rætt um málefni fatlaðra og mikilvægi þess að niðurstaða náist á milli Akraneskaupstaðar og félagsmálaráðuneytisins um gerð þjónustusamnings.
5. Barnaverndarmál.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 9:30