Bæjarráð
1.Samtök um kvennaathvarf - umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2009.
810180
2.Viðræður við félagsmálaráð
811032
Rætt um ýmis mál tengd starfsemi fjölskyldusviðs. Bæjarritara, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og formanni félagsmálaráðs falið að vinna áfram að málum og leggja tillögur fyrir bæjarráð.
3.Fundargerðir Menningarráðs Vesturlands árið 2008
810036
Lögð fram.
4.Fundargerðir Unglingaráðs Akraness 2008.
811020
Lögð fram.
5.Fundargerðir starfshóps um verkefnið ?Viskubrunnur í Álfalundi" árið 2008.
810078
Lagðar fram.
6.Fundargerðir stýrihóps um stjórnskipulag
810077
Lagðar fram.
7.Fundargerð starfshóps um fiskveiðiheimildir.
811011
Lagt fram.
8.Fundargerðir skipulags- og byggingarnefndar 2008.
810065
Lagt fram
9.Ungmennafélag Íslands - tillaga 14 samþykkt á 36. sambandsráðsfundi UMFÍ.
811009
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til íþrótta- og forvarnarnefndar.
10.Stjórnskipulagsbreytingar
810133
Bæjarráð samþykkir að fela stýrihópi um stjórnskipulag að kynna fyrir bæjarstjórn, á sérstökum fundi, tillögurnar og að því loknu verði stjórnskipulagsbreytingum vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
11.Óbyggðanefnd - næstu svæði hjá Óbyggðanefnd.
810178
Lagt fram. Bæjarstjóra falið að gæta hagsmuna Akraneskaupstaðar í samráði við verkefnastjóra sveitarfélaga á Vesturlandi um óbyggðamál, varðandi landareign (land Fitjakirkju) sem var keypt 1929. ( 3000ha.+)
12.Menningarráð Vesturlands - Fjárhagsáætlun 2009.
811022
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Menningaráðs til afgreiðslu fjárhagsáætlunar Akraneskaupstaðar. Áætlaður hlutur Akraneskaupstaðar er um 5,3 milljónir króna.
13.Efnahagsmál
810118
Lagt fram.
14.Sigurður Mikael Jónsson - Afsögn úr nefndum vegna brottflutnings úr bæjarfélaginu.
811021
Rún gerði það að tillögu sinni að tilnefna Höllu Ingibjörgu Guðmundsdóttur sem kjörin varamann í bæjarráð, ásamt því að tilnefna Hjördísi Garðarsdóttur, sem fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, í Fulltrúaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands sem aðalmann en Önnu Björgvinsdóttur til vara og Ragnheiði Kristjánsdóttur sem varamann í umhverfisnefnd í stað Sigurðar Mikaels Jónssonar. Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti. Bæjarráð þakkar Sigurði fyrir samstarfið og óskar honum velfarnaðar á nýjum slóðum.
15.Umsjón og eftirlit með slökkvitækjum í fasteignum Akraneskaupstaðar.
811026
Bæjarstjóra er falið að gera samkomulag við Eldvörn ehf. um eftirlit með slökkvitækjum og viðhald þeirra í fasteignum Akraneskaupstaðar. Samningurinn verði lagður fyrir bæjarráð til endanlegrar afgreiðslu.
16.Endurskoðun fjárhagsáætlunar 2008.
811012
Bæjarráð fjallaði um endurskoðun fjárhagsáætlunar og samþykkir fyrirliggjandi breytingartillögur fyrir sitt leyti. Bæjaráð lýsir áhyggjum af því efnahagsástandi sem skapast hefur. Bæjarráð sem ákvað frestun vinnu við fjárhagsáætlun fyrir 2009 samþykkir að lögð verði fram áætlun með grunnatriðum án fjárfestingahugmynda og án tillögu um verðlagsbreytingar, gert verði ráð fyrir launabreytingum.
17.Sólmundarhöfði 2
810183
Bæjarráð óskar eftir því við skipulags- og byggingarnefnd að fram fari umfjöllum Húsfriðunarnefndar um íbúðarhúsið. Bæjarráð leggur þó áherslu á að girðingabrot og skúrar á umræddri lóð verði fjarlægðir hið fyrsta.
Fundi slitið.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunar Akraneskaupstaðar 2009.