Bæjarráð
1.Norrænt orkusveitarfélag 2011 - Samkeppni
1010173
2.Fundargerðir OR - 2010
1002247
Lagðar fram.
3.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2010
1010035
Lögð fram.
4.Samband íslenskra sveitarfélaga - Fundargerðir 2010
1007007
Lagt fram.
5.Faxaflóahafnir sf. - Fundargerðir 2010.
1002157
Lögð fram.
6.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - Fjárhagsáætlun 2011
1010166
Önnur mál:
Sveitarstjórnir er hvattar til að kanna hvort fyrirtæki sem selja tóbak í sveitarfélaginu séu að selja unglingum tóbak.
Þá eru sveitarstjórnir hvattar til að kalla framkvæmdastjóra og/eða formann stjórnar til fundar til upplýsingar í upphafi nýs sveitarstjórnartímabils.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlitsins 2011 til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Erindi varðandi tóbakssölu er vísað fjölskylduráðs.
Bæjarráð samþykkir einnig að bjóða framkvæmdastjóra og formanni stjórnar til fundar við bæjarráð.
7.Fundargerðir stjórnar Dvalarheimilisins Höfða 2010
1007046
Lögð fram.
8.Fundargerðir starfshóps um uppbyggingu íþróttamannvirkja
1008071
Lögð fram.
9.Fundargerðir Skipulags- og umhverfisnefndar 2010.
1007025
Bæjarráð staðfestir byggingarhluta fundargerðarinnar. Aðrir töluliðir lagðir fram.
10.Styrkbeiðni NFFA.
1010190
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu, en vísar til samnings Akraneskaupstaðar og Vina hallarinnar ehf. frá 9. okt. 2009, þar sem fram kemur m.a. að NFFA hefur aðgang að Bíóhöllinni því að kostnaðarlausu í tvo daga á ári.
11.Reglur um sölu eigna í eigu Akraneskaupstaðar og stofnana hans
1010146
Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra Framkvæmdastofu að gera tillögu um frekari útfærslu á reglunum.
12.Jöfnunarsjóður - Áætluð úthlutun aukaframlaga 2010
1010188
Lagt fram til upplýsingar.
13.Velferðarvaktin - Áskorun um aðgæslu við ákvarðanatöku
1010187
Lagt fram.
14.Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar og stofnana árið 2011
1009156
Aðalskipulag:
Á síðasta fundi skipulags- og umhverfisnefndar var lagt til við bæjarstjórn að ráðist yrði í endurskoðun aðalskipulags kaupstaðarins á næsta ári. Megináhersla í þeirri endurskoðun yrðu forsendur skipulagsins og göngu- og stígakerfi.
Áætlaður kostnaður vegna aðkeyptrar vinnu við þetta verkefni er kr. 1.500.000,- og auglýsingakostnaður kr. 100.000,- .
Deiliskipulag:
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarstjórn að unnið verði við eftirtalin deiliskipulagsverkefni á næsta ári.
1 Akratorg ? lokið verði við deiliskipulag Akratorgs og næsta nágrennis á grundvelli niðurstöðu þeirra samkeppni sem fram fór um framtíðarskipulag svæðisins.
Áætlaður kostnaður kr. 1.500.000,-.
2 Breið ? haldið verði áfram með deiliskipulagsvinnu af svæðinu sem hófst á árinu 2010 í samstarfi við Faxaflóahafnir.
Áætlaður kostnaður kr. 2.500.000,-.
3 Skógahverfi ? stærð svæðis endurskoðuð með tilliti til markmiða um þéttleika byggðar á skipulagssvæðinu og íbúðafjölda.
Áætlaður kostnaður kr. 400.000,-.
4 Óskilgreind smærri verkefni.
Áætlaður kostnaður kr. 750.000,-.
Áætlaður heildarkostnaður vegna aðkeyptrar deiliskipulagsvinnu er kr. 5.150.000,- og auglýsingakostnaður er áætlaður kr. 350.000,-.
Formanni og framkvæmdastjóra er einnig falið að vinna kostnaðaráætlun vegna umhverfis- og umferðamála fyrir næsta fund nefndarinnar.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2011.
15.Leynislækjarflöt - skipulag svæðisins.
1010012
Skipulags- og umhverfisnefnd lýsir yfir ánægju sinni með þann áhuga sem íbúar við Leynisbraut og Víðigrund hafa fyrir nánasta umhverfi sínu eins og fram kemur í erindi þeirra og vilja til að stuðla að framgangi verkefnisins með sjálfboðaliðavinnu.
Nefndin bendir á að í gildandi deiliskipulagi er svæðið skilgreint sem opið svæði ? leiksvæði þannig að ekki er þörf á að að gera breytingar á gildandi skipulagi svo unnt sé að hrinda hugmyndum íbúanna í framkvæmd.
Nefndin leggur því til við bæjarráð að Framkvæmdastofu (garðyrkjustjóra) verði falið að vinna tillögur að útfærslu (skipulagi) leiksvæðisins og þær hugmyndir mótaðar í sem bestu samstarfi við íbúa svæðisins og skipulags- og umhverfisnefnd.
Bæjarráð samþykkir að fela Framkvæmdastofu að vinna tillögur að útfærslu á skipulagi svæðisins og þær hugmyndir mótaðar í sem bestu samstarfi við íbúa og skipulags- og umhverfisnefnd.
16.Land undir gróðrarstöð - umsókn
1008104
Að ofangreindum skilyrðum uppfylltum leggur Skipulags- og umhverfisnefnd til við bæjarráð að tekið verði jákvætt í erindið um að umsækjanda verði úthlutað lóð undir gróðrarstöð á svæði milli Einhamars og Akurprýði (landnr. 131244).
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið skv. framangreindu.
17.Rekstrarsamningar við félög og félagasamtök.
1010191
Tillagan er svohljóðandi:
,,Bæjarstjórn Akraness samþykkir að fela bæjarstjóra að hafa umsjón með og leiða viðræður sem Akraneskaupstaður samþykkir að taka upp við félög og/eða félagasamtök, sem hafa áhuga á að gera sérstaka rekstrarsamninga um afmarkaðar rekstrareiningar, sem skynsamlegt kann að vera að Akraneskaupstaður feli slíkum félögum og/eða félagasamtökum að annast.
Samningar um slík verkefni hafi það að leiðarljósi að viðkomandi verkefni tengist beint starfsemi viðkomandi félaga og/eða félagasamtaka og geti með samlegðaráhrifum komið þeim til góða og að hagur Akraneskaupstaðar felist í greiðslu sanngjarns rekstrarkostnaðar. Slíkir samningar skulu vera til þriggja eða fimm ára í senn."
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að skýra viðfangsefnið með því að taka saman og fara yfir gildandi rekstrarsamninga og kynna fyrir bæjarráði.
18.Bæjarskrifstofur - endurnýjun ljósritunarvéla
1010141
Afgreiðslu frestað.
19.Kosningar til stjórnlagaþings 27. nóv. 2010
1010169
Tilnefning eins fulltrúa frá D-lista sem varamanns í stað Jónínu Rósu Halldórsdóttur.
Frá D-lista, sem varamaður var tilnefndur: Kristleifur Skarphéðinn Brandsson
Samþykkt.
Fundi slitið.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til skipulags- og umhverfisnefndar.