Bæjarráð
1.Tónlistarskólar.
901067
2.Haustfundur þingmanna Norðvesturkjördæmis með sveitastjórnum á Vesturlandi í Ólafsvík 21. okt. 2008.
811051
Lagt fram.
3.Fasteignaskattur elli- og örorkulífeyrisþega.
901065
Akraneskaupstaður hefur þegar upplýst ráðuneytið um gildandi reglur sem eru lögum samkvæmt.
4.Fasteignaskattur elli- og örorkulífeyrisþega.
901065
Bæjarráð samþykkir tillögu fjármálastjóra að reglum um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega.
5.Eignaraðild að Orkuveitu Reykjavíkur.
901048
Bæjarráð felur Landslögum að gera tillögu að svari til umboðsmanns Alþingis.
6.Svæðisáætlun ásamt umhverfisskýrslu.
901087
Bæjarráð samþykkir að vísa skýrslunni til framkvæmdaráðs og skipulags- og umhverfisnefndar.
7.Atvinnuleysi og heilsa.
901094
Eins og verið hefur er frítt í sund fyrir atvinnulausa. Bæjarráð og Íþróttabandalag Akraness hafa komist að samkomulagi um að frítt verði í tækjasal í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum á virkum dögum frá kl. 09:00-11:00. Framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu falin framkvæmd og kynning málsins.
8.Styrkbeiðni.
901093
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
9.Fasteignagjöld á hesthús.
901083
Bæjarráð samþykkir að sömu reglum verði fylgt og á árinu 2008.
10.Fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirits Vesturlands 2009 ásamt greinargerð um starfsaðstöðu HeV.
812134
Bæjarráð staðfestir hlutdeildina.
11.Samkomulag Reykjavíkurborgar og Samtaka Iðnaðarins fh. tilgreindra fyrirtækja.
901097
Lagt fram.
12.Heiðursborgari.
901108
Bæjarráð þakkar bréfritara góð orð.
13.Drög að dagskrá bæjarstjórnar 2009.
901046
Lögð fram.
14.Leiðbeiningar félags- og tryggingamálaráðuneytis um fjárhagsaðstoð sveitarfélaga.
812132
Bæjarráð staðfestir niðurstöðu fjölskylduráðs. Fjármögnun er vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2009.
15.Tafabætur.
901112
Til viðræðna mættu Guðmundur Guðjónsson og Peter Jessen vegna Skógahverfis 2. áfanga - 1. hluta.
Bæjarráð samþykkir að taka saman öll gögn varðandi málið og kalla síðan saman til fundar þá aðila sem að verkinu hafa komið.
16.Fundargerðir starfshóps um innkaupareglur Akraneskaupstaðar 2009.
901098
Bæjarráð staðfestir tillögu starfshópsins að fella út 5. gr. Innkaupastefnu Akraneskaupstaðar meðan unnið er að nýjum reglum. Jafnframt samþykkir bæjarráð að engin stórinnkaup verði gerð nema í samráði við framkvæmdastjóra stofa.
17.Fundargerðir stjórnar Faxaflóahafna sf. 2009.
901068
Lögð fram.
18.Meðferð opinberra gagna
901105
Bæjarráð staðfestir heimildina.
19.Alþjóðleg sviðslistamiðstöð á Breið.
812077
Bæjarráð staðfestir tillögu Akranesstofu, en ekki er gert ráð fyrir launakostnaði Akraneskaupstaðar vegna þessa.
20.Stjórnsýslukæra Soffíu Magnúsdóttur, Kirkjubraut 40, Akranesi f.h. Kalmansvíkur ehf.
811073
Bæjarráð felur Landslögum að svara erindinu.
21.Tekjumörk v/húsaleigubóta.
901063
Erindi vísað til Fjölskyldustofu og Framkvæmdastofu.
22.Tekju- og eignamörk v/leiguíbúða.
901060
Erindi vísað til Fjölskyldustofu og Framkvæmdastofu.
23.Sérstakar húsaleigubætur.
901059
Erindi vísað til Fjölskyldustofu.
24.Almennar húsaleigubætur.
901058
Erindi vísað til Fjölskyldustofu.
25.Úttektir á sjálfsmatsaðferðum grunnskóla.
901084
Málinu vísað til afgreiðslu Fjölskyldustofu.
26.Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 2009.
810034
Erindi vísað til Fjölskyldustofu og fjármálastjóra.
27.Framlög vegna nýbúafræðslu 2009.
901049
Bréfi vísað til Fjölskyldustofu og fjármálastjóra.
Fundi slitið.
Erindi vísað til skólanefndar Tónlistarskólans.