Bæjarráð
3225. fundur
30. júlí 2014 kl. 16:00 - 16:15
í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18
Nefndarmenn
- Ólafur Adolfsson formaður
- Valdís Eyjólfsdóttir varaformaður
- Ingibjörg Valdimarsdóttir aðalmaður
- Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Ingibjörg Pálmadóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
- Guðný Jóna Ólafsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði:
Guðný J. Ólafsdóttir
verkefnastjóri
Dagskrá
1.Kjarasamningar - sumaruppbót
1407032
Erindi SFR stéttarfélags, dags. 29.7.2014, þar sem óskað er eftir að félagsmenn SFR sem starfa hjá Akraneskaupstað fái sambærilega sumaruppbót og samþykkt var að greiða félagsmönnum í Verkalýðsfélagi Akraness og Starfsmannafélagi Reykjavíkur sem vinna hjá Akraneskaupstað.
Bæjarráð samþykkir erindi SFR um að greiða starfsmönnum í SFR sem vinna hjá Akraneskaupstað sérstaka sumaruppbót.
Fundi slitið - kl. 16:15.