Bæjarráð
1.Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - arður ársins 2012
1303210
2.Markaðsstofa Vesturlands - aðalfundur 2013
1304074
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Akraneskaupstaðar á fundinum.
3.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - aðalfundur 2013.
1304073
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Akraneskaupstaðar á fundinum.
Bæjarráð samþykkir einnig að fulltrúar Akraneskaupstaðar í nýrri stjórn verði Þröstur Þór Ólafsson sem aðalmaður og Rún Halldórsdóttir til vara.
4.Menningarráð - fundargerðir 2013
1302203
Lögð fram.
5.Starf framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs
1303028
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi umsóknum en 25 umsóknir bárust um starf framkvæmdastjóra. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
6.Samþykkt um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar
1302073
Afgreiðslu frestað.
7.Alþingiskosningar 27. apríl 2013
1303045
Lagt fram til kynningar.
8.Alþingiskosningar 27. apríl 2013
1303045
Lagt fram til kynningar.
9.Alþingiskosningar 27. apríl 2013
1303045
,,Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að semja kjörskrá. Jafnframt er bæjarráði veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugsemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna Alþingiskosninga 27. apríl nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.
Bæjarstjórn samþykkir að greiðslur til yfirkjörstjórnar, undirkjörstjórna og annarra starfsmanna verði með sama fyrirkomulagi og var viðhaft við síðustu kosningar í október 2012."
Samþykkt bæjarstjórnar lögð fram.
Á kjörskrá á Akranesi mv. 11. apríl 2013 eru alls 4673, karlar 2369 og konur 2304.
Bæjarráð samþykkti kjörskrána með áritun sinni til framlagningar.
10.Umsókn um lán - áfrýjun - TRÚNAÐARMÁL
1302193
Bæjarráð samþykkir erindið og felur fjármálastjóra að leggja fyrir bæjarráð drög að samkomulagi vegna málsins.
11.Húsnæðismál - áfrýjun 2013 - TRÚNAÐARMÁL
1302115
Afgreiðslu frestað.
12.Brunabótafélag - aukafundur fulltrúaráðs EBÍ
1303148
Lagt fram.
13.Sorpurðun Vesturlands - aðalfundur 2013
1303171
Meðfylgjandi er grænt bókhald vegna ársins 2102 ásamt ársreikningi Sorpurðunar 2012.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara með umboð Akraneskaupstaðar á fundinum.
Bæjarráð samþykkir einnig að Sævar Jónsson og Magnús Freyr Ólafsson verði fulltrúar Akraneskaupstaðar í nýrri stjórn.
14.Menningarráð - aðalfundur 2013
1302202
Meðfylgjandi er ársreikningur Menningarráðs fyrir árið 2012.
Lagt fram.
Bæjarstjóri fer með umboð Akraneskaupstaðar á fundinum skv. samþykkt bæjarráðs frá 16. mars 2013.
15.Almenningssamgöngur - Uppgjör vegna 2012 og reikningar vegna 2013
1303209
Lagt fram.
16.Starfsmannamál - trúnaðarmál
1304055
Lagt fram.
17.Orlofsnefnd húsmæðra - styrkbeiðni
1303202
Bæjarráð samþykkir erindið með vísan til laga þar að lútandi.
18.Karlakórinn Svanir endurvakinn - styrkbeiðni
1303197
Bæjarráð samþykkir stofnstyrk að fjárhæð kr. 200.000.- Fjárveiting verði tekin af liðnum 21-89-5948-1.
19.FVA - Comeniusarverkefni móttaka erlendra gesta
1303196
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
Þröstur Þór Ólafsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins með vísan til hæfisreglna sveitarstjórnarlaga.
20.Þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara
1302181
Lagt fram.
21.Bótakrafa v. vinnuslyss - Trúnaðarmál
1302225
Bæjarráð samþykkir erindið.
22.OR - Planið framvinduskýrsla
1204074
Lagt fram til kynningar.
23.Málskotsnefnd
1303154
Bæjarráð samþykkir tillögu fjölskylduráðs um að stofnuð verði málskotsnefnd til loka árs 2013.
24.Bókasafn - búnaðarkaup
1303096
Bæjarráð samþykkir ráðstöfun á 2 tölvum og kaup á tölvubúnaði fyrir Bókasafn Akraness. Fjárveiting komi fram í viðauka fjárhagsáætlunar og komi af liðnum ,,óviss útgjöld", viðhald áhalda 21-95-4660-1.
25.Fjöliðjan - búnaðarkaup
1303203
Bæjarráð samþykkir ráðstöfun á 5 tölvum og kaup á 5 skjáum fyrir Fjöliðjuna, vinnu- og hæfingarstað. Fjárveiting komi fram í viðauka fjárhagsáætlunar og komi af liðnum ,,óviss útgjöld", viðhald áhalda 21-95-4660-1.
Guðmundur Páll Jónsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins með vísan til hæfisreglna sveitarstjórnarlaga.
26.Óviss útgjöld 2013 - yfirlit
1304048
Lagt fram.
27.Sólmundarhöfði 7, aðgerðir v/ áframhaldandi framkvæmda
1210168
Lagt fram.
28.Upplýsingaskilti
1304051
Bæjarráð samþykkir fjárveitingu að fjárhæð um 2,2 mkr. til uppsetningar á skilti sunnan Hvalfjarðarganga. Fjárhæðar verði getið í viðauka fjárhagsáætlunar ársins 2013 og fjárveitingin tekin af liðnum ,,óviss útgjöld" 21-95-4995-1. Framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs er falið að ræða við Vegagerðina og óska heimildar til uppsetningar skiltisins.
Bæjarráð samþykkir jafnframt að sett verði upp skilti norðan við gatnamót þjóðvegar nr. 1 og nr. 51 á árinu 2014 í samráði við Vegagerðina og felur framkvæmdastjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna kostnaðaráætlun og leggja fyrir bæjarráð. Fjárveitingu er vísað til afgreiðslu fjárhagsáætlunar ársins 2014.
29.Grundaskóli - lausar kennslustofur
1304047
Bæjarráð samþykkir tillögu starfshópsins og felur umhverfis- og framkvæmdasviði framkvæmd málsins. Gert er ráð fyrir fjárveitingu af liðnum ,,óráðstafað" skv. áætlun 31-83-7.
Hrönn Ríkharðsdóttir vék af fundi við afgreiðslu erindisins með vísan til hæfisreglna sveitarstjórnarlaga.
30.Krókatún - endurnýjun gangstéttar o. fl.
1304058
Bæjarráð samþykkir fjárveitingu að fjárhæð allt að 5,0 mkr. vegna verkefnisins. Fjárhæðar verði getið í viðauka fjárhagsáætlunar ársins 2013 og fjárveitingin tekin af liðnum ,,óviss útgjöld" 21-95-4995.
Guðmundur Páll Jónsson vék af fundi við afgreiðslu erindisins með vísan til hæfisreglna sveitarstjórnarlaga.
Fundi slitið - kl. 18:10.
Lagt fram til kynningar.