Bæjarráð
Dagskrá
1.Leigu- og rekstrarsamningur ÍA og Akraneskaupstaður
1412007
Skóla- og frístundaráð samþykkti á fundi sínum, þann 20.1.2015, að leggja til við bæjarráð að leigu- og rekstrarsamningur Akraneskaupstaðar og Íþróttabandalags Akraness verði endurnýjaður og framlengdur. Ráðið leggur til að í 5. grein samningsins verði skipting tekna á þann veg að 20% renni til leigusala og 80% til leigutaka. Einnig leggur ráðið til að samningstímabilið samkvæmt 11. grein verði til og með 31.12.2016.
Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.
2.Fundargerðir 2014 - starfshópur um Sementsreit
1412164
4. fundargerð starfshóps um Sementsreit frá 15.12.2014.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.Fundargerðir 2015 - menningar- og safnanefnd
1501212
4. fundargerð menningar- og safnanefndar frá 20.1.2015.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.Ábendingar um málefni innflytjenda
1501154
Ábendingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 8.1.2015, um málefni innflytjenda.
5.Frumvarp til laga nr. 403 - um örnefni (heildarlög)
1501360
Frumvarp til laga frá nefndasviði Alþingis, um örnefni.
Lagt fram til kynningar.
6.Veraldarvinir - sjálfboðaliðar 2015
1501153
Tölvupóstur frá Veraldarvinum dags. 8.1.2015, þar sem óskað er eftir að endurvekja samstarf ef áhugi er fyrir hendi.
Lagt fram til kynningar.
7.Árbók Akurnesinga - endurnýjun samnings
1501370
Bæjarráð samþykkir að kaupa 40 eintök af Árbók Akurnesinga ásamt kaup á auglýsingu, samtals að fjárhæð kr. 412.580.
Fjárhæðinni verður ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 20830-4995.
Fjárhæðinni verður ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 20830-4995.
8.Flóasiglingar
1501150
Viljayfirlýsing Akraneskaupstaðar og Reykjavíkurborgar lögð fram.
Bæjarráð fagnar þessari niðurstöðu og leggur áherslu á að ráðist verði sem fyrst í markaðsrannsókn og könnun á áhuga íbúa og fyrirtækja á þessum valkosti.
9.Dalbraut 6 - afhending á húsi og lóð
1410165
Erindi frá ÞÞÞ ehf. dags. 19.1.2015, þar sem óskað er eftir að afhendingu á húsi og lóð að Dalbraut 6 verði frestað til 1. maí 2015.
Bæjarráð samþykkir beiðni Þórðar Þórðarsonar f.h. Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar ehf. um frestun á afhendingu á húsi og lóð að Dalbraut 6 frestist til 1. maí næstkomandi.
Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins með tilliti til fyrirliggjandi kaupsamnings.
Bæjarráð felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins með tilliti til fyrirliggjandi kaupsamnings.
10.Búnaðar- og áhaldakaup 2015 (tækjakaupasjóður) - ráðstöfun fjármuna
1411073
Erindi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs dags. 22.1.2015, þar sem óskað er eftir fjárveitingu að upphæð kr. 270.000,- til endurnýjunar á húsbúnaði fyrir Vallarsel og kaup á þremur spjaldtölvum.
Bæjarráð samþykkir úthlutun úr tækjakaupasjóði að fjárhæð kr. 270.000 til Vallarsels.
Fjárhæðinni verður ráðstafað af liðnum viðhald áhalda 20830-4660.
Fjárhæðinni verður ráðstafað af liðnum viðhald áhalda 20830-4660.
11.Laugafiskur - lyktarmengun
1206151
Kvartanir vegna lyktarmengunar frá Laugafiski.
Bæjarráð þakkar Óskari Arnórssyni og Rannveigu Þórisdóttur fyrir komuna á fundinn og að gera grein fyrir þeirra sjónarmiðum sem íbúar í nágrenni við fyrirtækið Laugafisk.
12.Baugalundur 20 - umsókn um byggingarlóð
1501319
Umsókn Grenja ehf. um byggingalóð við Baugalund nr. 20.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar Baugalundur 20 til Grenja ehf.
13.Deilisk. - Nýlendureitur, Melteigur 11 - 13 og Suðurgata 31 - 33
1406200
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning varðandi Nýlendureit við Kala ehf.
Kostnaði vegna samningsgerðar, þinglýsinga o.fl. allt að fjárhæð kr. 200.000 verði ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 20830-4995.
Kostnaði vegna samningsgerðar, þinglýsinga o.fl. allt að fjárhæð kr. 200.000 verði ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 20830-4995.
14.Starfshópur um starfsmannastefnu Akraneskaupstaðar
1409231
Bæjarráð telur mikilvægt að vinna sem fyrst að heildarstefnumótun fyrir Akraneskaupstað og felur bæjarstjóra undirbúning vegna þessa.
Bæjarráð samþykkir beiðni formanns starfshóps um endurskoðun starfsmannastefnu Akraneskaupstaðar um að hópurinn skili tillögum sínum þegar heildarstefnumótun liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir beiðni formanns starfshóps um endurskoðun starfsmannastefnu Akraneskaupstaðar um að hópurinn skili tillögum sínum þegar heildarstefnumótun liggur fyrir.
15.Styrkir og auglýsingar 2015
1501159
Erindi Skessuhorns dags. 21.1.2015, vegna auglýsinga í Vestulandsþætti á ÍNN.
Bæjarráð samþykkir kaup á auglýsingum á INN sem sýndar verða í tengslum við þætti um Vesturland. Í þáttunum verður lögð áhersla á fjölbreytt mannlífs,- menningar,- og atvinnutengt efni af öllu Vesturlandi. Þættirnir verða alls 12 talsins og verða endursýndir all oft.
Fjárhæðinni, allt að kr. 220.000, verður ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 20830-4995.
Fjárhæðinni, allt að kr. 220.000, verður ráðstafað af liðnum óviss útgjöld 20830-4995.
16.Starf sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs
1411044
Farið yfir stöðu ráðningarferilsins.
Bæjarstjóri upplýsir að heildarkostnaður til ráðgjafa vegna þessa er um kr. 200.000.
Bæjarstjóri upplýsir að heildarkostnaður til ráðgjafa vegna þessa er um kr. 200.000.
17.Sementsverksmiðjan stjórnstöð - myndlistarhópar útleiga
1501379
Drög að samningi við myndlistarhóp á Akranesi um leigu á stjórnstöð í Sementsverksmiðjunni.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi leigusamning og felur bæjarstjóra frekari úrvinnslu málsins.
18.Liðveisla - endurskoðun á reglum Akraneskaupstaðar
1403148
Velferðar- og mannréttindaráð samþykkti á fundi sínum þann 17.12.2014 reglur um liðveislu, lagt er til við bæjarráð að reglurnar verði samþykktar.
Bæjarráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til bæjarstjórnar til staðfestingar.
19.Kútter Sigurfari - staða mála
1501415
Erindi menningar- og safnanefndar dags. 21.1.2015 vegna Kútters Sigurfara.
Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að leita eftir formlegu samstarfi við þjóðminjavörsluna, forsætisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið varðandi framhald málsins. Kanna þarf hvort umrædd styrkveiting geti falið í sér vinnu við gerð verndunaráætlunar fyrir skipið að hluta eða heild. Slík vinna yrði unnin undir forystu Þjóðminjasafnsins.
Fundi slitið - kl. 21:00.