Bæjarráð
1.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2011
1106063
2.Fjárhagsstaða stofnana 2011
1103148
Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða í A- hluta sýna halla sem nemur 63,3 millj. kr. á móti áætluðum halla í fjárhagsáætlun sem nemur 3,8 millj. kr. Halli A- hluta með fjármagnsliðum nemur 216,5 millj. króna á móti áætluðum halla sem nemur 45,3 millj. kr. Samstæðan í heild sinni sýnir halla án fjármagnsliða sem nemur 131,0 millj. kr á móti áætlun 9,9 millj. króna halla, en 285,7 millj. kr. halla með fjármagnsliðum á móti 60,6 millj. krónum í fjárhagsáætlun.
Lagt fram.
3.Samningur um heimakstur máltíða fyrir elli- og örorkuþega jan. 2010
1001075
Bæjarráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar breytingunni á gjaldskránni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.Starfshópur um íþrótta- og æskulýðsmál
1108134
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og vísar beiðni um aukafjárveitingu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.Starfshópur um félagsþjónustu
1108132
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og vísar beiðni um aukafjárveitingu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.Starfshópur um skólamál
1108133
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og vísar beiðni um aukafjárveitingu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.FVA - Tækjakaup fyrir málmiðnadeild 2011
1011073
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra fylgja málinu eftir.
8.Brekkubæjarskóli - aðkoma að skólastjórn og starfsmannamálum
1107106
Að gefnu tilefni skal tekið fram, varðandi starfsmannamál Brekkubæjarskóla - trúnaðarmál -merkt 1010199, um aðkomu Sveins Kristinssonar, forseta bæjarstjórnar, að málinu er lokið með sátt. Aðkoma hans að málinu var skv. samþykkt bæjarstjórnar Akraness frá 25. janúar 2011, 14. tl. merkt trúnaðarmál, en um málið var fjallað á lokuðum fundi að lokinni boðaðri dagskrá fundarins. Bæjarstjóri hafði lýst sig vanhæfan vegna persónulegra tengsla við aðila máls og einnig var framkvæmdastjóri Fjölskyldustofu lýstur vanhæfur í málinu sem undirmaður bæjarstjóra.
Varðandi erindi það sem hér er til umræðu samþykkir bæjarráð að fela bæjarstjóra að gera tillögu að að svari og leggja fyrir bæjarráð.
9.Fjölbrautaskóli Vesturlands - kaup á tækjum
1109050
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu að svo komnu máli, en vísar til þess að Akraneskaupstaður hefur lagt skólanum til fjármuni á árinu 2011 til tækjakaupa sem nemur um 2,3 millj. kr. Þröstur vék af fundi við afgreiðslu málsins með vísan til vanhæfisreglna sveitarstjórnarlaga.
10.Fjölbrautaskóli Vesturlands - móttaka gesta
1109051
Bæjarstjóra falið að afgreiða málið. Þröstur vék af fundi við afgreiðslu málsins með vísan til vanhæfisreglna sveitarstjórnarlaga.
11.Almenningssamgöngur milli Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins
1109059
Á fundinn mættu til viðræðna þeir Torfi Jóhannesson og Ólafur Sveinsson frá SSV. Bæjarráð þakkar gagnlegar upplýsingar en telur skynsamlegra að vinna málið frekar áður en gengið er til samninga við Vegagerðina um yfirtöku sérleyfa á Vesturlandi.
12.Verkefnatillögur - Sóknaráætlun landshluta
1109067
Á fundinn mættu til viðræðna þeir Torfi Jóhannesson og Ólafur Sveinsson frá SSV. Bæjarráð tekur ekki afstöðu til tillagnanna að svo komnu máli, en telur eðlilegt að um þær verði fjallað á aðalfundi SSV.
13.Æðaroddi 40 - umsókn um lóð
1108110
Bæjarráð staðfestur lóðarúthlutunina.
14.Búseta og þjónusta við fatlaða - Fasteignir ríkisins
1105072
Bæjarráð felur bæjarstóra að leiða nauðsynlegar viðræður af hálfu Akraneskaupstaðar.
15.Fasteignaskattstekjur 2011 - uppgjör á framlagi vegna lækkunar
1109027
Lagt fram.
16.Brunavarnaáætlun Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar
810116
Bæjarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar henni til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn.
17.Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
1109017
Lagt fram.
18.Krókalón - lóðamál vegna deiliskipulags
903112
Guðmundur Páll vék af fundi við umfjöllun málsins með vísan til vanhæfisreglna sveitarstjórnarlaga. Afgreiðslu frestað.
19.Búnaðarkaup stofnana árið 2011
1101176
Bæjarráð samþykkir erindið, fjárveiting komi úr tækjakaupasjóði.
20.Kirkjubraut 39, umsókn um leyfi til að setja upp sjálfsafgreiðslustöð
1103088
Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að umrædd ákvörðun um byggingarleyfi á lóðinni nr. 39 verði afturkölluð.
21.Afskriftir 2011
1109092
Bæjarráð samþykkir afskrift skv fyrirliggjandi tillögu að fjárhæð kr. 689.108.-
22.Styrkir til greiðslu fasteignaskatts til aðila skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga
1108026
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
23.Bókasafn - Ýmis mál
1109082
Bæjarráð samþykkir erindið og leggur til við bæjarstjórn að aukafjárveiting verði veitt. Fjárveitingu verði vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011.
24.Afmæli og aðrir merkisviðburðir hjá stofnunum bæjarins
1109102
Afgreiðslu frestað.
25.Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Vesturlands 2011
1107002
Lögð fram.
Fundi slitið - kl. 19:10.
Bæjarráð mun taka málið til nánari skoðunar við endurskoðun fjárhagsáætlunar.