Fara í efni  

Bæjarstjórn

1406. fundur 28. janúar 2025 kl. 17:00 - 18:40 í Miðjunni, Dalbraut 4
Nefndarmenn
  • Valgarður L. Jónsson forseti bæjarstjórnar
  • Einar Brandsson 1. varaforseti
  • Ragnar B. Sæmundsson 2. varaforseti
  • Þórður Guðjónsson aðalmaður
  • Kristinn Hallur Sveinsson aðalmaður
  • Liv Aase Skarstad aðalmaður
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson aðalmaður
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir aðalmaður
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
  • Steinar Dagur Adolfsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Steinar Adolfsson sviðsstjóri
Dagskrá
Forseti býður fundarmenn velkomna til fundar.
Forseti upplýsir að í dagskrárliðum nr, 8, mál nr. 2401027, Fundargerðir Orkuveitu Reykjavíkur, og nr. 9., mál nr. 2401028, Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem báðir fela í sér framlagningu fundargerða, eru villur og nýrra fundargerða að vænta. Með vísan til þessa leggur forseti til að dagskrárliðirnir verði felldir brott úr dagskránni og komi fyrir næsta fund bæjarstjórnar.

Samþykkt 9:0

1.Útboðsgögn Miðbæjarreitur - Suðurgata 57, Suðurgata 47, Skólabraut 24

2411193

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 16. janúar 2025 fyrirliggjandi aðferðarfræði vegna fyrirhugaðs útboðs vegna Suðurgötu nr. 57, nr. 47, nr. 47a og Skólabrautar nr. 24 og vísaði málinu til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Til máls tóku:
SAS og LÁS.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi útboðsgögn vegna byggingarreits sem tekur til lóðanna Suðurgötu nr. 57, Suðurgötu nr. 47, Suðurgötu nr. 47a og Skólabrautar nr. 24.

Samþykkt 9:0

2.Reglur 2025 - afsláttur af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega

2412147

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 19. desember 2024 reglur Akraneskaupstaðar um afslátt af fasteignagjöldum eldri borgara og öryrkja á árinu 2025 og vísaði þeim til bæjarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar.
Bæjarstjórn samþykkir reglur um afslátt af fasteignagjöldum eldri borgara og öryrkja vegna ársins 2025.

Samþykkt 9:0

3.Kosning í ráð og nefndir tímabilið 2022 - 2026

2206003

Líf Lárusdóttir tekur aftur sæti í bæjarstjórn eftir leyfi.
til máls tóku::
ÞG og VLJ úr stóli forseta.

Líf Lárusdóttir tekur sæti að nýju í bæjarstjórn og Þórður Guðjónsson tekur sæti sem varabæjarfulltrúi. Skipan þessi gildir frá 31. janúar 2025.

Samþykkt 9:0

Líf Lárusdóttir tekur sæti að nýju í bæjarráði og við embætti formanns bæjarráðs.
Einar Brandsson bæjarfulltrúi tekur sæti sem varamaður í bæjarráði í stað Guðmundar Ingþórs Guðjónssonar sem víkur úr sæti sínu sem varamaður í bæjarráði.

Framangreind skipan ráðsins gildir frá 31. janúar 2025.

Samþykkt 9:0

4.Fundargerðir 2025 - bæjarráð

2501002

3584. fundargerð bæjarráðs frá 16. janúar 2025.
Til máls tóku:
RBS um dagskrárliði nr. 3 og nr. 7.
EBr um dagskrárliði nr. 3 og nr. 7.
SAS um dagskrárlið nr. 10.
VLJ úr stóli forseta um dagskrárlið nr. 10.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

5.Fundargerðir 2025 - velferðar- og mannréttindaráð

2501003

238. fundargerð velferðar- og mannréttindaráðs frá 21. janúar 2025.
Til máls tóku:
RBS um dagskrárlið nr. 1.
KHS um dagskrárlið nr. 1.
HB um dagskrárlið nr. 1.
RBS um dagskrárlið nr. 1.
KHS um dagskrárliði nr. 1 og nr. 4.
LÁS um dagskrárlið nr. 1.
KHS um dagskrárlið nr. 1.
LÁS um dagskrárlið nr. 1.
RBS um dagskrárlið nr. 1.
KHS um dagskrárlið nr. 1

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

6.Fundargerðir 2025 - skóla- og frístundaráð

2501004

254. fundargerð skóla- og frístundaaráðs frá 22. janúar 2025.
Til máls tóku:
RBS um dagskrárlið nr. 1.
JMS um dagskrárlið nr. 1.
LÁS um dagskrárlið nr. 1.
RBS um dagskrárlið nr. 1.
ÞG um dagskrárliði nr. 1 og nr. 5.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7.Fundargerðir 2025 - skipulags- og umhverfisráð

2501005

317. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 7. janúar 2025.

318. fundargerð skipulags- og umhverfisráðs frá 20. janúar 2025.
Til máls tóku:
RBS um fundargerð nr. 317, dagskrárlið nr. 3.
KHS um fundargerð nr. 317, dagskrárlið nr. 3.
GIG um fundargerð nr. 317, dagskrárlið nr. 3.
VLJ úr stóli forseta um fundargerð nr. 317, dagskrárlið nr. 3.
RBS um fundargerð nr. 317, dagskrárlið nr. 3
RBS um fundargerð nr. 318, dagskrárlið nr. 1.
SAS um fundargerð nr. 317, dagskrárliði nr. 1 og nr. 3.
SAS um fundargerð nr. 318, dagskrárlið nr. 1.
LÁS um fundargerð nr. 317, dagskrárlið nr. 3.
LÁS um fundargerð nr. 318, dagskrárlið nr. 1.

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:40.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00