Félagsmálaráð (2002-2008)
677. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 19. október 2004 og hófst hann kl. 16:00.
Tryggvi Bjarnason
Sigurður Arnar Sigurðsson
Sæmundur Víglundsson
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs og Sveinborg Kristjánsdóttir yfirfélagsráðgjafi sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Bréf félagsmálaráðuneytisins dags. 12.10.04 þar sem m.a. kemur fram að sveitarfélög munu frá 1. janúar 2005 hvorki þurfa að greiða ábyrgðargjald vegna viðbótarlána né hafa umsýslu með lánveitingum til einstaklinga.
Lagt fram.
4. Fjölskyldustefna.
Málin rædd.
Fundi slitið kl. 17:40.