Félagsmálaráð (2002-2008)
742. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, mánud. 15.okt. 2007 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Magnús Þór Hafsteinsson, formaður
Margrét Þóra Jónsdóttir
Anna Lára Steindal
Auk þeirra Ingibjörg Gunnarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi og Sveinborg Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Stefna Akraneskaupstaðar í málefnum erlendra íbúa
Það er skylda sveitarfélaga að marka sér stefnu í málefnum erlendra íbúa. Félagsmálaráð hefur skipað vinnuhóp til að vinna að gerð stefnu um málefni erlendra íbúa á Akranesi. Vinnuhópinn skipa Anna Lára Steindal, Magnús Þór Hafsteinsson og Sveinborg Kristjánsdóttir.
Fundi slitið kl. 17:40